Óperukórinn í Reykjavík







21. April 2012

Í BORGARFJÖRÐINN BRÁ ÉG MÉR . . . .

Sunnudaginn 6. maí 2012 leggur Óperukórinn í Reykjavík undir stjórn Garðars Cortes land undir hjól og ekur sem leið liggur út úr skarkala höfuðborgarinnar og heimsælir nágrannabyggðalög við Borgarfjörð.  Fyrsta stoppistöð er Akraneskirkja og þar tekur kórinn þátt í messusöng kl. 11.00.

Í framhaldi af því heldur hann tónleika í Vinaminni, safnaðarheimili Akraneskirkju kl. 12.30 og eru tónleikarnir haldnir í samvinnu við Kór Akraneskirkju og verða þar við stjórnvölinn Sveinn Arnar Sæmundsson, stjórnandi Kórs Akraneskirkju og Garðar Cortes, píanóleikari er Hólmfríður Sigurðardóttir.

Þaðan liggur svo leið áfram inn Borgarfjörð og verða aðrir tónleikar í Borgarneskirkju kl. 16.00. Einsöngvar koma úr röðum Óperukórsins:
Björg Birgisdóttir, Elfa Dröfn Stefánsdóttir, Ingibjörg Ólafsdóttir og Sigríður Ásta Olgeirsdóttir. Þær Ingibjörg og Sólveig Ásta eru hér á heimaslóðum Ingibjörg Akranes-yngismær og Sigríður Ásta Borgarnes-barn

Efni tónleikanna er á léttum vor-nótum. Kórarnir sameinast í Songs and sonnetts Shakespears eftir George Sharing og af öðru efni má nefna syrpu úr Meyjaskemmu Schuberts og einsöng og kóra úr West Side Story, Kátu ekkjunni og Carmen og íslenskar perlur, m.a. eftir Jón Ásgeirsson og Halldór Kiljan Laxness. Áheyrendur eru hvattir til að láta ekki sitt eftir liggja, heldur taka undir í fjöldasöng (textar afhentir á staðnum) Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir

Sjá auglýsingu

14. December 2011

Dagamunur í desember

Jólatónleikar Óperukórsins í Reykjavík laugardaginn 17. desember, klukkan 16:00 í Aðventkirkjunni í Reykjavík, Ingólfsstræti 19.

Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Í lok tónleikanna bjóða Óperukórinn og Aðventsöfnuðurinn upp á jólaveitingar.

Newer Posts »